Árið 2007 auglýsti íslenskt par eftir staðgöngumóður í Morgunblaðinu. Vakti auglýsingin talsverða umræðu í þjóðfélaginu en þar sem lög um tæknifrjóvganir heimila ekki staðgöngumæðrun á Íslandi var ætlunin að framkvæma aðgerðina erlendis. Nú, þremur árum síðar, hefur sama umræða skotið aftur upp kollinum í kjölfar áfangaskýrslu sem lögð var fyrir heilbrigðisráðherra á dögunum um staðgöngumæðrun á Íslandi. Með skýrslunni var ætlunin að skoða siðfræðileg, lögfræðileg og læknisfræðileg álitaefni varðandi staðgöngumæðrun og skapa grunn upplýstrar umræðu áður en ákveðið yrði hvort slíkt fyrirkomulag skyldi leyft á Íslandi.
Category: Deiglupistlar
Á Íslandi situr ríkisstjórn. Punktur. Það er ekki hægt að segja neitt annað um núverandi ríkisstjórn. Forsætisráðherra situr heima og fjármálaráðherra situr í súpunni.
Það er ekki augljóst að það sé endilega farsælt til lengdar að grundvalla landbúnaðarstefnu á því að kjarnorkustyrjöld sé á leiðinni og að tryggja þurfi nægan mat handa öllum þegar til hennar komi. En jafnvel ef við lítum svo á að það sé göfugt markmið að hafa næga innlenda matvöru á ófriðartímum, og þar með að tryggja margrætt matvælaöryggi, þá er hæpið að núverandi landbúnaðarkerfi fullnægi þeim kröfum vel.
Mönnum hefur hlaupið mikið kapp í kinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardaginn og nú á aldeilis að sýna Bretum í tvo heimana. Um það er ekkert nema gott að segja, nema hvað að það kann að vera til lítils að synja lögunum staðfestingar með afgerandi hætti ef jafnóhönduglega mun takast til við túlkun málsins út á við og raunin hefur verið hingað til þegar reynt hefur á ríkisstjórnina og stjórnvöld.
Íslendingar bíða nú langeygir eftir að fá í hendurnar brakandi ferskt eintak af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Rannsóknarnefndin vinnur nú hörðum höndum að því að leggja lokahönd á skýrslu sem ætlað er að: „leita sannleikans um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða“.
Árið 2008 þurfti ríkisstjórn Bandríkjanna að bjarga tryggingarrisanum AIG frá gjaldþroti. Fyrirtækið var orðið næstum þurrt af lausafé vega fjárfestinga í skuldavafningum. Í eðlilegu hagkerfi hefði fyrirtæki sem þetta átt að fara á hausinn en á þessum tíma var það ekki hægt. AIG tryggði til að mynda olíuflutninga til Bandaríkjanna og ef þeir hefðu stöðvast er óvíst hvað hefði getað gerst. Tryggingafélagið var því orðið svo stórt að það hefði haft alvarlegar afleiðingar fyrir fjármálakerfi heimsins ef það hefði orðið gjaldþrota. En hvers vegna átti þetta sér stað og er einhver leið til að forðast það?
Það er margt sem gerir Ísland einstakt og mikið af því er erfitt að uppgötva fyrr en flutt er til annars lands. Augljósu hlutirnir eins og myrku veturnir, björtu sumrin, hreina vatnið beint úr krananum, náttúrufegurðin og svo lengi mætti telja verða enn einstakari þegar þeir eru ekki innan handar í daglegu lífi. Í viðbót eru svo ótrúlegustu litlir hlutir sem eru svo sjálfsagðir að þeir uppgötvast ekki fyrr en úr fjarlægð.
Fyrir skömmu kynnti borgarfulltrúinn og hinn nýbakaði borgarfræðingur frá Edinborg, Gísli Marteinn, framtíðarsýn fyrir Reykjavík og þróun hennar næstu áratugina. Svo mikla athygli hlutu kynningar hans á efninu að fullt var út úr húsi í ófá skipti. En hve mikið vit er í henni?
Undanfarin ár hefur umræðan um fjárhættuspil á Íslandi aukist. Áhugi Íslendinga á pókerspili sem kallast Texas Holdem hefur aukist til muna. Fjölmargar verslanir selja póker töskur, fjölmörg pókermót hafa verið haldin hér á landi og íslenskar sjónvarpsstöðvar hafa keypt sýningarrétt af vinsælu póker sjónvarpsefni.
Ein af ótrúlegustu fréttafyrirsögnum sem höfundur hefur séð á hinni virtu vefsíðu visir.is var hin háfleyga fyrirsögn „Evrópusambandið flengir Grikki“. Það er ekki oft sem visir.is kemur með neikvæðar tilkynningar um ESB og því vakti athygli hin harða áhersla á þá staðreynd að ESB tók hreint og beint ákvörðunarvaldið af einu af sambandsríki sínu.
Nú þegar sveitastjórnarkosningar nálgast og prófkjör stjórnmálaflokkanna eru farin á fullt, er gósentíð hjá áhugamönnum um félagssálfræði og mannlega hegðun almennt. Í prófkjörum skiptast á skin og skúrir líkt og í öðrum kapphlaupum. Þegar úrslit liggja fyrir keppast stjórnmálamenn við að lofsyngja góða frammistöðu sína eða finna ótrúlegustu útskýringar á slæmu gengi. Þessi hegðun stjórnmálamanna er gott dæmi um hugsanavillur, sem allir beita til að sjá heiminn eins og við viljum sjá hann.
Klukkan á Íslandi er snarvitlaus og heldur því fram að hádegi einum og hálfum klukkutíma áður en sólin er hæst á lofti. Þetta þýðir að þeir sem fara á fætur klukkan sjö á Íslandi eru í raun að rífa sig upp klukkan hálfsex. Er ekki til nóg óréttlæti í heiminum án þess að Ísendingum sé boðið upp á þetta rugl?
Atvinnuleysi á Íslandi mælist nú 9% sem jafngildir því að rétt tæplega 15. þúsund manns séu án atvinnu, en til samanburðar þá voru atvinnulausir í september 2008 um 2500 manns. Þessar tölur sýna svo ekki verður um villst að staða fjölmargra fjölskyldna í landinu hefur gjörbreyst til hins verra á síðastliðnum tveimur árum. Úrræðin til þess að aðstoða fólk við að komast aftur út á vinnumarkaðinn virðast því miður ekki vera að virka sem skildi. Reglugerð um vinnumarkaðsaðgerðir fyrir atvinnulausa þar sem atvinnulausum býðst meðal annars starfsþjálfun, starfsendurhæfing, aðgangur að tilteknu námi og margt fleira virðist ekki vera að reynast atvinnulausum eins vel og við mátti búast en samkvæmt skýrslu Samtaka atvinnulífsins, Atvinna fyrir alla, þá tóku einvörðungu 8% þátt í vinnumarkaðsaðgerðunum sem sem gefur skýra vísbendingu um að endurskoða þurfi að nýju þær vinnumarkaðsaðgerðir sem í boði eru.
Sú aðgerð að reyna að einangra Teheran til að koma í veg fyrir kjarnorkuvopnaeign landsins gæti þó reynst of seinvirk. En samkvæmt upplýsingum frá Íran er þróun á auðguðu úrani mun lengra á veg komin en óttast var, jafnvel of langt til að tími gefist til að komast í veg fyrir hana með alþjóðlegum þrýstingi. Áfram stendur þó umheimurinn frammi fyrir tveimur valkostum, Íran með kjarnavopnum og Íran án kjarnavopna. Hvorug niðurstaðan verður einföld, en önnur er óhugsandi.
Það kom mér nokkuð á óvart þegar ég settist niður til að horfa á fréttatíma Stöðvar 2 á mánudagskvöldið, að fyrsta frétt snerist ekki um Icesave, ríkisstjórnina eða bankamál almennt. Eins og flestir vita líklega nú þegar að þá var þar skýrt frá faglegum ágreiningi tveggja herramanna sem ganga undir nöfnunum Blaz Roca og Móri.
Tímabundin gjaldeyrishöft geta reynst þjóðum í neyð ágætlega, rétt eins læknar gefa sjúklingum í hjartastoppi stundum raflost til að bjarga lífi þeirra. En enginn læknir fengi að starfa lengi ef hann héldi áfram að gefa sjúklingum sínum raflost með reglulegu millibili eftir að þeir eru komnir úr lífshættu. Hagkerfið þurfti hugsanlega á rafstuði að halda fyrir einu og hálfu ári, en við megum ekki leyfa því að breytast í rafmagnsstól.
Það er ekki oft sem ég rekst á ríkisútgjöld sem mér finnst algjör sóun og finn ekki nokkra mögulega réttlætingu á. Tugþúsunda ávísunin sem ég fékk senda í pósti frá ríkissjóði um daginn hlýtur þó að falla í þann flokk.
Fólk má ekki gleyma því að sjávarútvegurinn er atvinnugrein og rétt eins og í öðrum atvinnugreinum þá fylgja ákveðnar skuldir og fjárfestingar, meðal annars í fullkomnari skipum og kaupum á kvóta. Þessi fyrirtæki er að mestu vel rekin fyrirtæki og greiða sínar skuldir en mætti segja sama um fyrirtæki í öðrum rekstri á Íslandi? Hvers hagur er það að steypa þessum fyrirtækjum í þrot? Skuldirnar falla þá á alla landsmenn og margra ára uppbygging í sjávarútvegi fer fyrir lítið.
Tölvuleikjaiðnaðurinn er vaxandi grein á Íslandi. Stofnuð voru samtök á síðasta ári meðal tölvuleikjaframleiðenda á Íslandi sem heita Icelandic Gaming industry. Þar eiga 8 fyrirtæki sæti sem samtals velta um 10 milljörðum króna á ári, en þess ber að geta að velta CCP er þar af um 7 milljarðar. Innan þessara fyrirtækja starfa í kringum 350 starfsmenn á Íslandi og gert er ráð fyrir að starfsmannafjöldinn muni þrefaldast á næstu fimm árum og þá væntanlega tekjurnar líka.
Hlutverk framhaldsskóla er fjölbreytt, þeir eiga að stuðla að frekari þroska nemenda, efla færni og þekkingu á hinum ýmsu sviðum, undirbúa þá undir atvinnulífið, frekari nám, virka þátttöku í samfélaginu og svo mætti lengi telja. Hafa verður í huga að fólk stundar en nám í framhaldskólum af mismunandi ástæðum en þó að framhaldsskólinn sé stökkpallur í margar áttir verða þeir sem koma til með að semja námsbrautarlýsingar í hverjum skóla að gera sér grein fyrir mikilvægi hans sem undirbúning fyrir áframhaldandi nám á háskólastigi.