Ætli Ísland að mæta alþjóðlegum skuldbindingum Parísarsáttmálans verður mikilvægt að tryggja greiðan aðgang að umhverfisvænum orkugjöfum. Ísland er meðal fremstu þjóða heims í rafbílavæðingu. Hlutfall nýskráðra rafmagns- og tengitvinnbíla af seldum fólksbílum hérlendis hefur aukist verulega. Einungis Norðmenn standa Íslendingum framar í þróuninni en árið 2019 voru meirihluti nýskráðra bíla í Noregi rafbílar.
Minna bensín, meira rafmagn
Árið 2019 samþykkti borgarráð að stefna að fækkun bensínstöðva í borgarlandinu um helming til ársins 2025. Ákvörðunin þótti í góðu samræmi við áherslur borgarinnar á aukna rafbílavæðingu. Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti myndi að líkindum dragast saman en eftirspurn eftir umhverfisvænni orkugjöfum aukast. Þörf fyrir rafhleðslustöðvar myndi stóraukast á næstu árum.
Óhjákvæmilega sjá fjölmargir aðilar tækifæri í þjónustu við rafbílaeigendur hérlendis. Jafnvel mætti ætla að þróunin fæli í sér margvísleg tækifæri fyrir fjölbreytta aðila á rafhleðslumarkaði. Þónokkrir hafa reynt að sækja fram en fallið í hamlandijarðveg fákeppni. Orka náttúrunnar, fyrirtæki í almannaeigu, sé í markaðsráðandi stöðu á rafhleðslumarkaði og samkeppnisumhverfi krefjandi.En hvernig stendur á því?
Uppskipting Orkuveitunnar
Orka náttúrunnar og Veitur eru aðskilin dótturfélög innan samstæðu Orkuveitunnar. Orka náttúrunnar virðist hins vegar njóta fjárhagslega góðs af samstæðusambandi við Veitur. Í lögum um Orkuveitu Reykjavíkur er þess sérstaklega getið að samkeppnisrekstur skuli ekki niðurgreiddur af einkaleyfisstarfssemi eða verndaðri starfsemi. Núverandi samstæðusamband virðist ganga í berhögg við löggjöfina og skekkir samkeppni á markaði. Sé ætlunin að taka af allan vafa um fullkominn aðskilnað rekstrareininganna, verður að tryggja uppskiptingu Orkuveitunnar.
Á borgarstjórnarfundi í gærdag lagði Sjálfstæðisflokkur fram tillögu um uppskiptingu rekstrareininga Orkuveitu Reykjavíkur. Þannig yrði samkeppnisrekstur Orku náttúrunnar annars vegar og Gagnaveitunnar hins vegar að fullu aðskilinn frá einokunarstarfsemi Veitna. Með uppskiptingunni mætti ná fram fjárhagslegum aðskilnaði og heilbriðgara samkeppnisumhverfi – auk heilmikils hagræðis af því að leggja niður móðurfélagið Orkuveituna. Í stuttu máli var tillagan felld.
Fákeppni kemur niður á neytendum
Reykjavíkurborg hefur ákveðið í skipulagi að fækka bensínstöðvum í borgarlandinu. Samhliða ákveður borgin að styðja við rafbílavæðingu. Í kjölfarið fer Reykjavíkurborg svo sjálf í samkeppni við einkaaðila um þjónustu við rafbílaeigendur. Fyrirtæki í eigu borgarinnar nær markaðsráðandi stöðu á rafhleðslumarkaði vegna náinna tengsla við landeigandann Reykjavíkurborg, samstæðusambands við einokunarfyrirtækið Veiturog ótakmarkaðs aðgengis að almannafé. Fyrirkomulagið stendur frjálsri samkeppni á rafhleðslumarkaði fyrir þrifum.
Það er enginn skortur á aðilum sem vilja taka þátt í rafbílavæðingunni hérlendis. Það er enginn skortur á þeim sem sjá tækifæri í þjónustu við rafbílaeigendur. Það er engin málefnaleg ástæða fyrir hið opinbera að hamla samkeppni á rafhleðslumarkaði. Það er engin málefnaleg ástæða fyrir hið opinbera að sitja eitt að framþróuninni – útiloka einyrkja, frumkvöðla og einkafyrirtæki frá tækifærum framtíðar. Framþróun rafbílavæðingar og uppbygging rafhleðslustöðva verður að byggja á frjálsri samkeppni. Fákeppni er engum til gagns og kemur fyrst og síðast niður á neytendum.
- Hjólaborgin - 16. júní 2021
- Brúarsmíði í borginni - 18. maí 2021
- Eftir hverju erum við að bíða? - 14. apríl 2021