Daglega þarf maður að glíma við hin ýmsu vandamál. Einstaka sinnum reka á fjörur vandamál sem eru þess eðlis að þau eru góð hvernig sem úkoman er eða á þau eru litið.
-Að hafa úr of mörgum góðum mönnum að velja þegar maður velur í byrjunarliðið hjá KR
-Þegar maður ætlar að kíkja á hitamælinn á glampandi sólskinsdegi í Reykjavík og, viti menn, það sést ekki á hann fyrir sólinni
-Að liggja yfir matseðlinum á Sticks ‘n’ Sushi og geta ekki valið á milli túnfiskssashimi og nautatataki.
-Að hendast til þegar að síminn hringir og geta ekki svarað símanum því maður var svo duglegur í Ræktinni í gær og tvíhöfðinn er á stærð við kökudisk.
-Að velja rúm í nýju íbúðina og þurfa að prófa hvert einasta
-Að vera nýbúinn í prófum og þurfa að velja úr sjö spennandi atvinnutilboðum
-Að vera of heitt utandyra á Íslandi
-Of mikill snjór í skíðaferðalaginu
Af hverju geta ekki öll vandamál verið svona skemmtileg
„The problem is not that there are problems. The problem is expecting otherwise and thinking that having problems is a problem.“
-Theodore Rubin
- Maísól hins hjólandi manns - 11. október 2005
- Ha, flugvöllur? - 7. október 2005
- Bjórvömb? - 30. október 2004